,

SUMMER FIELDS SÁPA

1,690 kr. N/A

Dygo

LÍKAMSSÁPA MEÐ CALENDULA OG GULRÓTARSAFA

Sumarleg, blíðleg og blómleg

Summer Fields sápan er búin til með ólífuolíu sem er fyllt með calendula blómum. Blómin hafa róandi, bakteríudrepandi og bólgueyðandi eiginleika, Calnedula blómablöðin veita húðinni  mjúkt nudd þegar þau strjúkast við húðina. Calendula hjálpar til við að búa til mjög milda sápu sem hentar flestum húðgerðum.

Availability: 10 in stock

SKU: 39655638 Categories: , Tags: , ,

LÍKAMSSÁPA MEÐ CALENDULA OG GULRÓTARSAFA

Sumarleg, blíðleg og blómleg

Ofurfita 8%

pH-gildi 8-9

Þyngd um 110g

Summer Fields sápan er búin til með ólífuolíu sem er fyllt með calendula blómum. Blómin hafa róandi, bakteríudrepandi og bólgueyðandi eiginleika, Calnedula blómablöðin veita húðinni  mjúkt nudd þegar þau strjúkast við húðina. Calendula hjálpar til við að búa til mjög milda sápu sem hentar flestum húðgerðum.

Gulrótarsafi er fullur af beta karótíni, A-vítamíni og andoxunarefnum.

Blanda af palmarosa, patchouli og ylang ylang skapar hlýjan, blóma, musky ilm sem minnir á löng sumarkvöld í náttúrunni.

Hverju sápustykki fylgir línsnúra, svo hægt er að hengja hana í sturtu. Þannig þornar sápan mjög auðveldlega og endist lengur. Það gerir það líka auðveldara að taka sápuna með sér í öll sumarævintýrin.

MEIRA UM VÖRUNA

Dygo sápurnar deila sameiginlegri grunnuppskrift sem inniheldur ólífu- og laxerolíur, kókos- og sheasmjöri sem býr til gott jafnvægi og endingargott sápustykki með dúnkenndri froðu sem hreinsar og um leið nærir húðina. E-vítamín er náttúrulegt andoxunarefni til að vernda ofurfituolíur frá því að spillast.

Notast er aðeins við hágæða, lífrænar olíur og smjör úr jurtaríkinu, leir sem er einungis ætlaður snyrtivörum, ætar plöntur og hreinar lífrænar ilmkjarnaolíur!

Hver sápulota er vandlega handunnin í stúdíói Dygo, þannig að hvert sápustykki hefur sína einstöku lögun, lit og ilm.

Öll auka innihaldsefni eru náttúruleg (plant-based og steinefni). Sápu- og sjampóstykkin innihalda EKKI pálmaolíu, dýrafitu, gervi liti eða tilbúna/gervi ilmi.

Dygo notast við kaldpressaða sáputækni, sem hæg þroska sápustykkin sem verða full af rakagefandi eiginleikum.

Umbúðir er úr endurvinnanlegum pappír sem má fara í moltu, endurunnum pappír með fræjum sem má planta í mold og 100% bómullarþræði sem er saumaður í sem innsigli.

Það þaf að passa uppá að Dygo sápurnar liggja ekki í vatni eða það leki mikið vatn á sápurnar svo að þær endist lengur, þar sem þær innihalda engin rotvarnarefni. Allar sápurnar eru með hátt hlutfall af náttúrulegu glýseríni sem er dásamlegt fyrir húðina en dregur líka að sér vatn og þess vegna er mjög mikilvægt að geyma sápurnar á þurrum stað.

ATHUGIÐ:
Eingöngu til ytri notkunar. Ef erting kemur fram skal hætta notkun. Forðist augnsnertingu.
Mælt er með að prufa sápuna á smá blett á húðinni áður en byrjað er að nota sápuna ef þú ert með mjög viðkvæma húð.