EKO búðin ehf.
Kt. 600921-0100
VSK númer: 14260
Bankaupplýsingar: 0515-226-003825
Tölvupóstur: ekobudin@ekobudin.is
Öll ákvæði skilmálanna hér að neðan ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur milli aðila verður slíkur ágreiningur einungis leystur fyrir varnarþingi félagsins, Héraðsdómi Reykjavíkur.
Afgreiðsla og afhending pantana
Staðfesting um vörukaup mun berast í tölvupósti um leið og greiðsla er gerð. Sé varan ekki til verður haft samband við kaupanda og tilkynnt um áætlaðan afhendingartíma vörunnar eða varan endurgreidd ef þess er óskað. Ef kaupandi óskar eftir heimsendingu verða vörurnar sendar með Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. EKO búðin ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á því tjóni sem kann að verða í flutningi. Á höfuðborgarsvæðinu eru pantanir afhentar á mánu-, miðviku- og föstudögum með Póstinum. Pantanir á landsbyggðina eru sendar með Íslandspósti, afhendingar tími er venjulega 2-4 dagar.
Hægt er að nálgast pantanir án endurgjalds en þá þarf að hafa samband með tölvupósti við ekobudin@ekobudin.is og fá afhendingatíma.
Sendingarkostnaður
Frí heimsending fyrir pantanir yfir 15.000 kr. Enginn sendingarkostnaður ef óskað er eftir því að sækja pantanir. Sendingarkostnaður er annars samkvæmt gjaldskrá Póstsins.
Skilafrestur og endurgreiðsla
Kaupandi hefur 30 daga til að hætta við kaup á vöru í vefverslun að því tilskildu að varan sé ónotuð, henni skilað í góðu lagi og í upprunalegum umbúðum. Ekki er hægt að skila vöru ef búið er að rjúfa innsigli á pakkningu. Skila verður inn kvittun fyrir vörukaupum þegar vöru er skilað og endurgreiðir EKO búðin vörukaup ef ofangreind skilyrði hafa verið uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Kaupandi greiðir sjálfur flutningskostnað fyrir vöru sem er skipt eða skilað. Ef vara er vitlaust afgreidd eða gölluð tekur EKO búðin sendingarkostnað á sig. Ef einhverjar spurningar vakna þessu tengdar, hafið þá vinsamlegast samband með tölvupósti við ekobudin@ekobudin.is.
Verð
Öll verð í vefverslun eru í íslenskum krónum með inniföldum 24% VSK en sendingarkostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Allir reikningar eru gefnir út með VSK.
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara og EKO búðin áskilur sér rétt til að afgreiða ekki pöntun ef verð vörunnar er rangt skráð eða röng mynd er við vöruna á vefsíðunni, verðin eru því birt með fyrirvara um prentvillur og myndarugl.
Greiðslumáti
Hægt er að greiða með kreditkorti, debetkorti eða millifærslu.
- Kredit-/debetkort: Hægt er að greiða fyrir vöruna í vefversluninni með kreditkorti í gegnum örugga greiðslugátt Valitors.
- Millifærsla: Pöntun er samþykkt þegar millifærslan hefur gengið í gegn. Ef ekki er greitt innan 24 klst. telst pöntunin ógild.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
