LÍKAMSSÁPA MEÐ CEDARWOOD OG RHASSOUL LEIR
Fullkomin eftir langan gönguferð á fjöllum.
Ofurfita 6%
pH-gildi 8-9
Þyngd um 110g
Fjallasápan er full af rhassoul leir sem hefur verið notaður til að þvo og draga út óhreinindi úr húðinni um aldir. Leirinn er fullt af kísil og magnesíum sem gerir hann mjög áhrifaríkan fyrir húðmeðferðir. Rauður leir færir sápunni djúprauðan lit og stuðlar að hreinsandi eigileikum sápunnar. Fjallasápa hentar vel öllum húðgerðum.
Blanda af sedrusviði, may chang og lavandin ilmkjarnaolíum skapar hlýjan viðarkenndan og ferskan ilm sem leiðir hugann að göngu upp á fjöll. Þessar ilmkjarnaolíur eru einnig þekktar fyrir að hafa upplífgandi, róandi og bakteríudrepandi eiginleika.
MEIRA UM VÖRUNA
Dygo sápurnar deila sameiginlegri grunnuppskrift sem inniheldur ólífu- og laxerolíur, kókos- og sheasmjöri sem býr til gott jafnvægi og endingargott sápustykki með dúnkenndri froðu sem hreinsar og um leið nærir húðina. E-vítamín er náttúrulegt andoxunarefni til að vernda ofurfituolíur frá því að spillast.
Notast er aðeins við hágæða, lífrænar olíur og smjör úr jurtaríkinu, leir sem er einungis ætlaður snyrtivörum, ætar plöntur og hreinar lífrænar ilmkjarnaolíur!
Hver sápulota er vandlega handunnin í stúdíói Dygo, þannig að hvert sápustykki hefur sína einstöku lögun, lit og ilm.
Öll auka innihaldsefni eru náttúruleg (plant-based og steinefni). Sápu- og sjampóstykkin innihalda EKKI pálmaolíu, dýrafitu, gervi liti eða tilbúna/gervi ilmi.
Dygo notast við kaldpressaða sáputækni, sem hæg þroska sápustykkin sem verða full af rakagefandi eiginleikum.
Umbúðir er úr endurvinnanlegum pappír sem má fara í moltu, endurunnum pappír með fræjum sem má planta í mold og 100% bómullarþræði sem er saumaður í sem innsigli.
Það þaf að passa uppá að Dygo sápurnar liggja ekki í vatni eða það leki mikið vatn á sápurnar svo að þær endist lengur, þar sem þær innihalda engin rotvarnarefni. Allar sápurnar eru með hátt hlutfall af náttúrulegu glýseríni sem er dásamlegt fyrir húðina en dregur líka að sér vatn og þess vegna er mjög mikilvægt að geyma sápurnar á þurrum stað.