HÁRSÁPA MEÐ KAOLIN LEIR OG KÓKOSOLÍU
Umhyggja fyrir viðkvæmasta hársvörðinn.
pH-svið 5-5,5
Þyngd um 85g
Dygo hársápustykkin hafa nokkuð sveitalegt útlit og eru stútfull af plöntudufti og leirum. Hugmyndin að baki hársápustykkjana er að sameina forna þekkingu með nútímalegri nálgun á snyrtivörum. Val á flestum hráefnum er innblásið útfrá landfræðilegum áttum, horft frá Evrópu. Þannig koma nöfnin til á hársápustykkjunum líkt og áttirnar norður, vestur, suður og austur.
West (vestur)(lyktlaust) hársápan er byggð uppi með Rhassoul leir, einnig þekktur sem washing earth, sem hefur verið notað um aldir af marokkóskum konum sem náttúrulegur hár- og húðhreinsir. Það hefur einstaka getu til að draga í sig óhreinindi án þess að erta húðina, svo það er fullkomið fyrir mildar hreinsivörur. Kaólín leir er einn af mildustu leirunum, vegna mikilla getu að draga í sig óhreinindi því er hann fullkominn fyrir viðkvæman hársvörð. Hafraduft og kamilleseyði bæta róandi eiginleikum við hársápustykki.
Kókosolía veitir fullkomna umhirðu fyrir þunnt hár og hár sem hefur orðið fyrir skemmdum. Í ljós hefur komið að kókosolía kemur í veg fyrir tap á hárpróteinum, hún gefur líka hárinu mýkt og gljáa. Dásamleg hafraolían nærir og róar viðkvæman hársvörð hún dregur einnig úr kláða.
West (lyktlaust) hársápan er hönnuð fyrir viðkvæmasta fólkið, þar af leiðandi inniheldur hársápan engar ilmkjarnaolíur. Hársápan hefur náttúrulegan, örlítið sætan ilm af kamillu og kókosolíu.
MEIRA UM VÖRUNA
Engin þörf er á súr skolun eða annarskonar hreinsi aðferð er nauðsynleg þegar skipt er yfir í Dygo hársápustykkin.
Hársápustykkið ætti að endast meira en 60 þvotta.
Hvert hársápustykki er vandlega handgert í heimastúdíói Dygo, þannig að hvert stykki hefur sína einstöku lögun, lit og ilm.
Umbúðir eru úr endurvinnanlegum pappír sem má fara í moltu, endurunnum pappír með fræjum sem má planta í mold og 100% bómullarþræði sem er saumaður í sem innsigli.
Svo hársápustykkin endast sem lengst er best að geyma þær á þurrum stað, eða þar sem vatn rennur ekki á þær.
Dygo hársápustykkin eru samsett með því að nota SCI (Sodium Cocoyl Isethionate) sem er eitt mildasta náttúrulega pálmaolíu fría yfirborðsvirka efnið úr kókoshnetu. Kókosolían er náttúrulega lág í pH fyrir hár, sem gerir olíuna fullkomna fyrir umhirðu hársins. Kókosolían er einnig mjög mild og hjálpar til við að hreinsa hárið vandlega og freyðir mjög vel. SCI er algjörlega lífbrjótanlegt.
Til að koma jafnvægi á samsetninguna er plöntum bætt við, plöntum sem hafa langa hefð fyrir að vera notaðar í hárumhirðu. Plöntu eins og Hrossagauk/Horsetail (Equisetum arvense) sem styrkir hárið og hefur verið notað til að örva hárvöxt vegna mikils kísilinnihalds.
Natríumbensóat og kalíumsorbat eru náttúrulega rotvarnarefni, sem eru nauðsynleg fyrir sápurnar til að vera þær gegn myglu. Rotvarnarefnin er algjörlega laus við pálmaolíu og eru byggð á plöntum (plant-based).
Maíssterkja og agar-agar (náttúrulegir þörungar) hjálpa til við að binda duftin saman og bæta við næraandi eiginleikum.
Virk hárnæringarefni eins og hrísgrjónaprótein, grænmetisglýserín og panthenól, vernda, gefa glans og næra hárið.
Öll auka innihaldsefni eru náttúruleg (plant-based og steinefni). Sápu- og hársápustykkin innihalda EKKI pálmaolíu, dýrafitu, gervi liti eða tilbúna/gervi ilmi.