LÍKAMSSÁPA MEÐ GULUM LEIR OG KAKÓSMJÖRI
Þegar húðin er þurr eins og eyðimörk.
Ofurfita 9%
pH-gildi 8-9
Þyngd um 110g
Eyðimerkur sápan er full af róandi og mýkjandi lífrænu kakósmjöri. Kakósmjörið verndar húðina gegn þurrki og eykur teygjanleika húðarinnar. Sápan hentar vel fyrir fólk með þurra húð.
Gulur leirinn færir sápuna jarðgulan lit. Hann er talinn mildur leir sem hægt er að nota á bæði þurra og viðkvæma húð. Leirinn hjálpar til við að hreinsa varlega óhreinindi húðarinnar.
Blanda af sætum appelsínu-, amyris- og frankincense ilmkjarnaolíum gefur austurlenskan, viðarkenndan og létt sítruskenndan ilm, sem leiðir hugann beint inn í miðja eyðimörkina. Þessar ilmkjarnaolíur eru einnig þekktar fyrir að vera bakteríudrepandi, hressandi og róandi áhrif.
MEIRA UM VÖRUNA
Dygo sápurnar deila sameiginlegri grunnuppskrift sem inniheldur ólífu- og laxerolíur, kókos- og sheasmjöri sem býr til gott jafnvægi og endingargott sápustykki með dúnkenndri froðu sem hreinsar og um leið nærir húðina. E-vítamín er náttúrulegt andoxunarefni til að vernda ofurfituolíur frá því að spillast.
Notast er aðeins við hágæða, lífrænar olíur og smjör úr jurtaríkinu, leir sem er einungis ætlaður snyrtivörum, ætar plöntur og hreinar lífrænar ilmkjarnaolíur!
Hver sápulota er vandlega handunnin í stúdíói Dygo, þannig að hvert sápustykki hefur sína einstöku lögun, lit og ilm.
Öll auka innihaldsefni eru náttúruleg (plant-based og steinefni). Sápu- og sjampóstykkin innihalda EKKI pálmaolíu, dýrafitu, gervi liti eða tilbúna/gervi ilmi.
Dygo notast við kaldpressaða sáputækni, sem hæg þroska sápustykkin sem verða full af rakagefandi eiginleikum.
Umbúðir er úr endurvinnanlegum pappír sem má fara í moltu, endurunnum pappír með fræjum sem má planta í mold og 100% bómullarþræði sem er saumaður í sem innsigli.
Það þaf að passa uppá að Dygo sápurnar liggja ekki í vatni eða það leki mikið vatn á sápurnar svo að þær endist lengur, þar sem þær innihalda engin rotvarnarefni. Allar sápurnar eru með hátt hlutfall af náttúrulegu glýseríni sem er dásamlegt fyrir húðina en dregur líka að sér vatn og þess vegna er mjög mikilvægt að geyma sápurnar á þurrum stað.